ekki gott
jæja nú er komið frekar langt síðan að ég bloggaði seinast, það er bara búið að vera brjálað að gera. Það var geggjað gaman í köben, eyddi alveg gommu af peningum.Skólinn er að gera útaf við mig og ég er ekki að nenna þessu lengur, en verð að líta á björtu hliðarnar þetta er að verða búið.
ég er búin að segja upp vífó og fer að vinna annars staðar eftir áramót, veit samt ekki alveg hvar ennþá.
En þetta er svona meira og minna sem er að ske hjá mér í dag, skóli og vinna.
Svo var ég að heyra að verðið á hráolíu hefði verið að hækka þannig að bensínið fer að hækka aftur og ég get auðvitað röflað endalaust yfir því, best bara að taka strætó námsmenn fá það frítt (eða fer eftir bæjarfélögum).
Svo þarf ég að fara að finna út hvenær maður sækir um í HÍ svo að maður komist þangað til þess að endanlega klára þetta nám. Silja ætlar ekki að koma með mér hún og Balvin eru að fara í heimsreisu í Ágúst þannig að hún kemur seinna. Mig langar bara að klára að næla mér í einhverja menntun svo að maður geti farið að vinna og reynt að safna sér fyrir íbúð sem er alls ekki auðvelt í dag.
Bjössi er líka að fara að segja upp, hann er ekki heldur að meika það að vera að vinna myrkranna á milli og uppskera ekkert. Þannig að við erum tæknilega séð bæði að fara í vinnuleit.
jæja ég hef hreinlega ekki tíma til þess að blogga meira það er geggjað að gera hjá mér þannig að ég reyni að gera það aftur fljótlega svo að það líði ekki svona langt á milli.
23. september 2008 klukkan 11:50
Ásta Jóna hilmarsdóttir
Ásta Jóna hilmarsdóttir







