Silfur....
Jæja ekki gekk okkur nógu vel í morgunn, en samt við lentum í öðru sæti sem var auðvitað mjög gott.Ég og dóra vöknumðum snemma í morgunn og ætluðum að vera ægilega sætar við þær sem eru að vinna með okkur og fórum í bakarí, það er svo sem ekki mikið að segja frá því en bakaríið var fullt út úr dyrum og það var biðröð fram að bílastæðinu, fyrst var ég alveg "bíddu hvað vöknuðu allir snemma í morgunn til þess að fara í bakarí"??
En svo fattaði ég að leikurinn var í morgunn, en ekki höfðum við Dóra tíma til þess að leita upp annað opið bakarí þannig að við fórum bara í vinnuna frekar svekktar. Mér samt finnst svo fyndið að þegar svona eitthvað skeður að okkur íslendingum gengur vel í einhverju þá vaknar þessi mikila þjóðasál til lífsins og allir fara að hvetja, sumt af þessu fólk sem hefur aldrei horft á handbolta, ég verð nú samt að viðurkenna það að maður var að glápa á þetta með öðru auganu þó að ég hafi aldrei haft gaman af handbolta, en svona er þetta víst. Jæja ég er að fara til Danmerkur á fimmtudaginn, og svo á ég að vera að læra fyrir próf sem ég verð að ná á morgunn, þannig að ég ætla ekki að hafa þetta lengra
24. ágúst 2008 klukkan 18:14
Ásta Jóna hilmarsdóttir
Ásta Jóna hilmarsdóttir







