hehe ummm
jæja það er smá síðan seinast
....kanski alltof langt ég var hrædd um að það væri búið að loka aðganginum mínum. Það er búið að vera helling að ske ég fór vestur fyrstu helgina í júní á sjómannadaginn það var fínt. 4 júní fór ég til Florída það var klikkað, ég set myndir hérna inn við tækifæri, við fórum í helling af görðum og ég skemmti mér konunglega. Ég var þar í tíu daga. Á afmælinu mínu fór ég í vík í Mýrdal og þar héldum við uppá afmælið okkar systra. svo byrjaði ég að vinna í byrjun júlí vegna þess að þá var ég búin í sumarfríi, aðra helgina í júlí var ættarmót og þar var klikkað gaman fyrir utan alla rigninguna
, maður var smá blautur. Helgina eftir það fór ég til akureyrar með Bjössa hann var eitthvað að fara að spila gólf og svo fórum við í jarðböðin á mývatni og það var bara fínt. það kostar ekki nema 1400 kr í þau og þetta er miklu betra en blá lónið og þar er ekki fólk útum allt að eðla sig. Ég er búin að gera mikið þetta sumar, og núna um verslunnarmannahelgina er ég ekki viss um að ég nenni að gera neitt.....algjör lúser....en ég verð víst að eiga pening þar sem ég er að fara til danmerkur 28 ágúst.
ég er alveg viss um að ég hafi aldrie eytt meiru á einu sumri, en jæja verð að hætta er að fara að þvo.
P.S. Sandra mín hér er nýja færslan hehehehehe
31. júlí 2008 klukkan 21:40
Ásta Jóna hilmarsdóttir
Ásta Jóna hilmarsdóttir








Vá hvað þú ert búin að vera að brasa mikið í sumar!! hvað á að gera í DK???
Hvernig er svo á vífó? ég sakna þess að vera þar.
LOVE Sandra