05nóvember

ussssss.........

Uss ekkert gengur mér í vinnuleit....þetta var kanski ekki besti tíminnn til að segja upp, ég klára uppsagnarfrestinn minn 1. des. Ef að einhver veit um vinnu endilega láta mig vita. Ætli ég dragi ekki bara uppsögninga mína til baka, bara til að hafa einhverja vinnu. Ég er búin að sækja um á milljón stöðum og á sumum þeirra fæ ég ekki svar eða þá að ég sé of ung eða þá að það sé kreppa og það sé ekki hægt að ráða eins og stendur. Jamms það er víst ekkert við þessu að gera. Mér finnst svo fúlt að eiga ekki nema 3 einingar uppí stúdentinn og útskrifast því ekki fyrr en í maí.... :(
Það er ekkert búið að vera að ske hjá mér nema vinna og skóli og jú elsku Eva átti litla dóttur seinastliðinn föstudag algjör rúsína og við erum að fara að kíkja á þær mæðgur um helgina vildum aðeins leyfa þeim að fá næði.
Prófin fara bráðum að koma og ég vona að ég brilleri á þeim og nái þeim öllum ( annars er það bara meira að taka í fjarnámi)
Jæja verð að fara að læra er að fara í próf á morgunn
05. nóvember 2008 klukkan 21:19
Ásta Jóna hilmarsdóttir
1 athugasemd
14október

kreppa kreppa

allt er að fara yfir um vegna þessarar kreppu sem er að ganga yfir heiminn. Ég finn samt ekki mikið fyrir henni, enda er ég fátækur námsmaður sem á ekkert þannig að það er ekkert að missa. Ég er að vísu ekkert smá pirruð, ég fór með bílinn minn í viðgerð og bjóst við að það kostaði svona 50 þús að gera við hann en svo var verið að hringja í mig og það er 100 þúsund kall takk fyrir. Ég er bara ekki viss hvernig ég redda því, það kanski vantar kanski á rauða torgið. :)
svo var ég farin að hlakka til að fara til Florida næsta sumar en það er bara ekkert víst að maður meiki það að fara. :) Dollarinn er orðin svo hár.
Það er nóg að gera í skólanum eins og venjulega, miðannaprófin að klárast og svona. Ég fer að fara hætta í vinnunni og er búin að fá nokkur jákvæð svör um vinnu þannig að núna er bara að bíða og sjá hvað ég geri. Ég er búin að vera rosalega dugleg í ræktinni og vona að það haldist þannig.
En hvað um það ég er að fara að reksa í þessum bílamálum mínum þannig að ég skrifa meira seinna.
14. október 2008 klukkan 15:46
Ásta Jóna hilmarsdóttir
1 athugasemd
04október

geđveikt.....

Ég mæli með að allir fari á youtube.com og skrifi : safinn 2008 og klikki á me singing eða eitthvað svleiðis, en þar er litla systir mín að syngja haleljúja og það er geggjað flott Glottandi
nenni ekki að blogga meira en endilega kíkið á þetta.....
04. október 2008 klukkan 00:29
Ásta Jóna hilmarsdóttir
Engin athugasemd
23september

ekki gott

jæja nú er komið frekar langt síðan að ég bloggaði seinast, það er bara búið að vera brjálað að gera. Það var geggjað gaman í köben, eyddi alveg gommu af peningum.
Skólinn er að gera útaf við mig og ég er ekki að nenna þessu lengur, en verð að líta á björtu hliðarnar þetta er að verða búið.
ég er búin að segja upp  vífó og fer að vinna annars staðar eftir áramót, veit samt ekki alveg hvar ennþá.
En þetta er svona meira og minna sem er að ske hjá mér í dag, skóli og vinna.
Svo var ég að heyra að verðið á hráolíu hefði verið að hækka þannig að bensínið fer að hækka aftur og ég get auðvitað röflað endalaust yfir því, best bara að taka strætó námsmenn fá það frítt (eða fer eftir bæjarfélögum).
Svo þarf ég að fara að finna út hvenær maður sækir um í HÍ svo að maður komist þangað til þess að endanlega klára þetta nám. Silja ætlar ekki að koma með mér hún og Balvin eru að fara í heimsreisu í Ágúst þannig að hún kemur seinna. Mig langar bara að klára að næla mér í einhverja menntun svo að maður geti farið að vinna og reynt að safna sér fyrir íbúð sem er alls ekki auðvelt í dag.
Bjössi er líka að fara að segja upp, hann er ekki heldur að meika það að vera að vinna myrkranna á milli og uppskera ekkert. Þannig að við erum tæknilega séð bæði að fara í vinnuleit.
jæja ég hef hreinlega ekki tíma til þess að blogga meira það er geggjað að gera hjá mér þannig að ég reyni að gera það aftur fljótlega svo að það líði ekki svona langt á milli.
23. september 2008 klukkan 11:50
Ásta Jóna hilmarsdóttir
2 athugasemdir
25ágúst

jćjs já.....

ég skil ekki alveg, það var alltaf verið að böggast í mér að blogga lítið og svo þegar maðru fer að gera það og fer að setja inn nýjar myndir þá nennir engin að lesa þessa blessuðu þvælu mína Ullandi
ég var að taka upptökuprófið í þýsku og ég fæ að vita úr því á morgunn ég vona að ég hafi náð því að þá verður þessi önn svo mikið auðveldari, en mér gekk ekki svo vel þannig að ég er ekki viss um að nái þessu.......úff
Ég nenni svo sannarlega ekki að sitja í þessu aftur mig langar bara að klára þetta Óákveðinn. Ég hlakka ekkert smá mikið til þess að fara til danmerkur Svalur
jæja ég nenni ekki að blogga fyrir sjálfan mig þannig að bara bless
25. ágúst 2008 klukkan 14:58
Ásta Jóna hilmarsdóttir
1 athugasemd
24ágúst

Silfur....

Jæja ekki gekk okkur nógu vel í morgunn, en samt við lentum í öðru sæti sem var auðvitað mjög gott.
Ég og dóra vöknumðum snemma í morgunn og ætluðum að vera ægilega sætar við þær sem eru að vinna með okkur og fórum í bakarí, það er svo sem ekki mikið að segja frá því en bakaríið var fullt út úr dyrum og það var biðröð fram að bílastæðinu, fyrst var ég alveg "bíddu hvað vöknuðu allir snemma í morgunn til þess að fara í bakarí"??
En svo fattaði ég að leikurinn var í morgunn, en ekki höfðum við Dóra tíma til þess að leita upp annað opið bakarí þannig að við fórum bara í vinnuna frekar svekktar. Mér samt finnst svo fyndið að þegar svona eitthvað skeður að okkur íslendingum gengur vel í einhverju þá vaknar þessi mikila þjóðasál til lífsins og allir fara að hvetja, sumt af þessu fólk sem hefur aldrei horft á handbolta, ég verð nú samt að viðurkenna það að maður var að glápa á þetta með öðru auganu þó að ég hafi aldrei haft gaman af handbolta, en svona er þetta víst. Jæja ég er að fara til Danmerkur á fimmtudaginn, og svo á ég að vera að læra fyrir próf sem ég verð að ná á morgunn, þannig að ég ætla ekki að hafa þetta lengra  Ullandi
24. ágúst 2008 klukkan 18:14
Ásta Jóna hilmarsdóttir
Engin athugasemd
14ágúst

nýjar myndir :)

jæja þá eru loksins komnar inn myndir frá því að ég var í orlando. Það eru ekki margar en samt nokkrar ég set inn fleiri seinna. Jæja nú er þessi skóli alveg að fara að byrja og ég nenni því varla, en mður verður víst að bíta í það. Ég var að klára smarprófin í dag og ég vona að ég hafi náð báðum.Svalur
Ég er alveg að missa mig ég hlakka svo til að fara til danmerkur, og já sandra ég, Dóra og bjössi erum bara að fara til þess að leika okkur, við vorum að pæla í að fara í tvegja daga skemmtisglingu en hættum við það vegna þess að við verðum bara fimm daga, hefðum gert þett hefðum við verið lengur.
Svo er bara útskrift í desember og engin skóli eftir áramót, þannig að þetta er allt taka endasprettinn, jæja ég nenni ekki að skrifa meira í bíli, en ég vona að þið hafið ánægju af myndunum og ég set inn fleri seinna


14. ágúst 2008 klukkan 15:21
Ásta Jóna hilmarsdóttir
Engin athugasemd
31júlí

hehe ummm

jæja það er smá síðan seinastHlæjandi....kanski alltof langt ég var hrædd um að það væri búið að  loka aðganginum mínum. Það er búið að vera helling að ske ég fór vestur fyrstu helgina í júní á sjómannadaginn það var fínt. 4 júní fór ég til Florída það var klikkað, ég set myndir hérna inn við tækifæri, við fórum í helling af görðum og ég skemmti mér konunglega. Ég var þar í tíu daga. Á afmælinu mínu fór ég í vík í Mýrdal og þar héldum við uppá afmælið okkar systra. svo byrjaði ég að vinna í byrjun júlí vegna þess að þá var ég búin í sumarfríi, aðra helgina í júlí var ættarmót og þar var klikkað gaman fyrir utan alla rigningunaÓákveðinn, maður var smá blautur. Helgina eftir það fór ég til akureyrar með Bjössa hann var eitthvað að fara að spila gólf og svo fórum við í jarðböðin á mývatni og það var bara fínt. það kostar ekki nema 1400 kr í þau og þetta er miklu betra en blá lónið og þar er ekki fólk útum allt að eðla sig. Ég er búin að gera mikið þetta sumar, og núna um verslunnarmannahelgina er ég ekki viss um að ég nenni að gera neitt.....algjör lúser....en ég verð víst að eiga pening þar sem ég er að fara til danmerkur 28 ágúst.Glottandi
ég er alveg viss um að ég hafi aldrie eytt meiru á einu sumri, en jæja verð að hætta er að fara að þvo.
P.S. Sandra mín hér er nýja færslan heheheheheUllandi
31. júlí 2008 klukkan 21:40
Ásta Jóna hilmarsdóttir
1 athugasemd
10maí

allt klappađ og klárt :)

Jæja þá er ég búin að fá afhenda lykla af nýju íbúðinni og svo erum við bara að fara að flytja í næstu viku, það verður svka fjör. Svalur Við fáum okkur víst engan kisa en það verður að hafa það, við höfum tækniælega séð ekki tíma til þess að eiga kæludýr, kanski seinna.
prófin eru búin og ég veit að ég fékk í einu en ég fæ að taka upptökupróf í ágúst svo að ég nái að útskrifast í des Hlæjandi. Ég er að fara vestur á sjómannadaginn þó að ég hafi sagt að ég ég mundi aldrei fara þangað aftur yfir þessa heldi, við erum að fara systurnar í svona systraferð og vonandi verður það gaman.
Svo er ekki langt þangað til að ég fer út, fer 4 júní og hlakka til , mér finnst samt að tíminn líði alltof hratt áður en maður veit af þá er kominn vetur aftur, þetta er alltof fljótt að líða Óákveðinn
En hvað um það ég er að fara að vinna þannig að ég verð að fara, en ég skal reyna að skrifa oftar hehe
10. maí 2008 klukkan 08:18
Ásta Jóna hilmarsdóttir
2 athugasemdir
02apríl

Brútus v.s. Svellana

jæja ég er ekkert smá sæl þessa dagana enda er ég búin að finna nýja íbúð :)
Ég er að fara að flytja 1. júní og ég hlakka ekkert smá til, við erum að fara að flytja inní kópavog, leigan er ekki nema 50 þús sem ég er mjög sátt með, þá þarf ég ekki að flytja til keflavíkur í stúdentagarðana þar Svalur
Svo líka í dag lækkuðu þeir bensin verð aðeins svo að maður átti efni á því að setja bensín á bílinn sinn....ég borgaði 128,9 kr fyrir líterinn en seinast borgaði ég 151.3 og það er smá munur. Skólinn fer alveg að klárast ég er bara á lokasprettinum og hlakka ekkert smá til að geta sagt bless framhaldsskóli og HALLÓ háskóli heheBrosandi.
Svo í maí verður maður bara í flutningum, og í júní fer ég út það er ekki nema tveir mánuðir þangað til og ég hlakka líka gaggjað til þess Ullandi
Þegar við erum flutt ætlum að við að fá okkur kött við erum ekki alveg sammála hvort að það eigi að vera læða að nafni Svellana eða fress að nafni Brútus en það kemur allt í ljós og vonandi náum við skynsamlegri niðurstöðu með það, en jæja verð að fara er að fara að læra undir próf sem ég verð að ná á morgunn, en þetta er allt að fara í rétta átt með bensínið Óákveðinn
02. apríl 2008 klukkan 21:53
Ásta Jóna hilmarsdóttir
1 athugasemd

Ađalvalmynd

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Street artist defaces bikini advertisement Funny Images, Art made with rocks! Funny Images, A very straightforward bumper sticker Funny Images, Derp in a swing Funny Images, If children’s drawings were made into toys Funny Images, Now THAT’S cosplay..

Auglýsing

Atburđarteljari

Prófíll

  • Nafn: Ásta Jóna hilmarsdóttir
  • Kyn: kvk
  • Hjúskaparstađa: trúlofuđ
  • Um mig: er á mölinni ađ klára menntaskólann og stefni á HÍ haustiđ 2009

Könnun

hversu vel ţekkiru mig?

Leit

Klukkan

Innskráningar kubbur

Leikur dagsins

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...